þriðjudagur, mars 09, 2010
laugardagur, mars 06, 2010
ég fór í vikunni með rebekku vinkonu í gropius bau að skoða ljósmyndasýningu þýska tískuljósmyndarans f.c. gundlach. gundlach var mjög heitur tískuljósmyndari í þýskalandi á 6., 7. og 8. áratugnum, ljósmyndaði mikið fyrir þýsku tímaritin film und frau og brigitte. við skemmtum okkur mjög vel á sýningunni, bæði yfir fallegum myndum og fallegum fötum þessa gamla tíma. skemmtilegt að sjá hvernig margt hefur breyst frá þessum tíma. það var allt svo ferlega elegant hérna í denn, á meðan í dag er miklu meira leyfilegt, allt frá elegans til trassí. konurnar hans gundlach voru mjög gjarnan með hatta, hanska og héldu á blómum... e-ð sem ég ætla að fara að gera meira af, þó ekki væri nema bara til þess að lyfta sér eilítið upp í amstri dagsins...



þriðjudagur, mars 02, 2010
mamiya c220

Originally uploaded by rutsig
nokkrar mamiyu myndir frá íslandi á flickr-inu.
núna er ég byrjuð að leika mér með canon ae1 filmuvél.
það var rosa mikill spenningur í mallanum um daginn þegar ég sótti filmu í framköllun... eins og í gamla daga. ég hef alveg lúmskt gaman að þessu filmudóti. það er svo skemmtileg tilfinning sem maður fær við að taka á filmu... spenningur, tilhlökkun... kom e-ð yfir höfuð á filmuna? veit það ekki fyrr en í næstu viku þegar ég sæki hana úr framköllun! maður lærir líka að vanda sig meira við hvert skot, það finnst mér hollt og gott.
mánudagur, febrúar 22, 2010
Glacier Portraits



þetta eru myndirnar sem ég var með á ljósmyndasýningu sem opnaði á laugardaginn síðasta í gallerí kaleidoskop, hér í berlín.
ég prentaði þær út 90x120 cm stórar og fyllti heilan vegg með þeim. ég er ekki frá því að það hafi lyfst aðeins á mér typpið þegar ég sá þær hanga þarna í einni strípu.
opnunin var hrikalega skemmtileg, fullt af fólki sem kom til að skoða myndir og fagna. ég fékk fullt af hrósi og heyrði margar athyglisverðar pælingar um myndirnar... sumar sem höfðu ekki einu sinni farið í gegnum hausinn á mér. en ofsa skemmtilegt þegar verkin manns vekja spurningar og vangaveltur hjá fólki, það þýðir að þau hafi skilið e-ð eftir sig.
jöklamyndirnar tók ég þegar ég fór með yndislegum vinum upp á sólheimajökull núna í janúar, með herdísi ofurhuga í broddi fylkingar. þetta var mikil ævintýraför og upplevelsi hið mesta. sýni kannski fleiri myndir frá þeirri ferð síðar...
aðeins frá opnuninni...

mánudagur, febrúar 15, 2010
father and sons

father and sons 1
Originally uploaded by rutsig

father and sons 2
Originally uploaded by rutsig
myndir sem ég tók á íslandi um jólin á mamiy-una hans tengdapabba. mér þótti þetta meira en lítið erfitt, þar sem það endaði með því að ég varð sjóveik af allri spegluninni, öfugleikanum og ó-/skerpunni. ég hefði sem sagt aldrei meikað það sem ljósmyndari í gamla daga...
módelin eru steinar, guðjón og stebbi.
fimmtudagur, febrúar 04, 2010
halló 2010
og ég á miklum bömmer yfir að hafa ekki náð að standa við áramótaheitið, að semja júróvisjón-lag. ég ætlaði að hafa svo mikinn frítíma í fæðingarorlofinu mínu og hrista eins og eitt lag fram úr erminni. en þetta fæðingarorlof kom og fór áður en ég vissi af. en e-n tímann mun júróvisjón-lag rutar líta dagsins ljós... e-n tímann!
ég strengdi að sjálfsögðu heit um þessi áramót, eins og vanalega. en núna er ég orðin svo spéhrædd, þori ekki að segja öllum heiminum það. "þegar" ég stend við það má heimurinn heyra af því.
ég setti nokkrar myndir á flickr-ið sem ég gerði fyrir ísraelskan fatahönnuð sem stendur á bakvið merkið butchwear. mjög lærdómsríkt og skemmtilegt verkefni. módelið er hún ute.


mánudagur, desember 07, 2009
afmælisboð
hvað gefur maður kennaranum sínum í afmælisgjöf...?!?!


